HOME | DD

devilfromhell — Text about my aunt
Published: 2009-06-07 03:24:50 +0000 UTC; Views: 1209; Favourites: 1; Downloads: 4
Redirect to original
Description Sirrey María Axelsdóttir  born August 11th 1972, died February 5th 2009

Lést 36 ára

Elsku besta Sirrey mín ég sakna þín óendanlega mikið.
Ég vildi óska þess að ég hefði getað kynst þér mikið betur.
Þú varst uppáhalds frænka mín þótt ég þekkti þig ekki það vel.
Ég man þó ekki hvenar ég hitti þig fyrst en ég man að þú komst í brúðkaup mömmu og Kjartans.
en ég man þó ekki mikið eftir því.
Svo nokkrum árum seinna komstu í heimsók til okkar á Selfoss með Aron okkar.
Ég man þegar þú sagðir þetta við mig "Aron okkar".
Ég átti æðislegar stundir með ykkur tveim.
Ég var svo ánægð að fá að hafa verið með þér þessa viku sem þú varst með okkur.
Ég man þegar þú sýndir mér fimleikalistir þínar þegar ég, þú Aron og Gummu Karel fórum út á róló og svo líka þegar þú sagðir að þér findist úlpan mín flott og spurðir mig hvort ég vildi skipta á úlpum og ég sagði að ég vildi það helst ekki því ég hafði fengið úlpuna mína mína í jólagjöf þá sagðir þú bara "það er allt í lagi. Þú mátt samt eiga mína".
Ég var alltaf í úlpuni þegar ég fór út.
Mér þótti mjög svo vænt um hana ég vildi að ég ætti hana ennþá.
Ég man líka þegar þú áttir í smá vandræðum og Aron var tekinn af þér í smá tíma og þú vildir að hann yrði hjá mér ég var svo ánægð að þér fanst það.
Að þú treystir mér fyrir litlu músini þinni.
Það var mér mikils virði.
Ég sakna þín svo mikið að ég vildi að þú værir meðal okkar ennþá mér fanst sárt að þú varst tekin frá okkur svona snemma.
Þú varst bara að verða 37 ára.
Mamma ákvað að taka mig bara með í kistulagninguna því við við náðum svo vel saman frekar en þú og systkini mín því við vorum svo góðar vinkonur.
Þótt það var frekar erfitt þá er ég fegin að ég kom því ég fékk að sjá þig í seinasta skiptið og það var svo gott að sjá þig þú varst svo "peaceful" og alltaf jafn falleg.
Ég er samt fegin að þú ert laus við fíknina og ert komin á betri stað.  Svo í jarðaförini.  Ég hefði ekki getað grátið meira en ég gerði þar.  Þetta var svo erfitt fyrir mig.  Svo þegar við fórum að jarðsetja kerið þitt.  Það var svo sætt að sjá hvað Aron okkar var sterkur á þessum tíma.  Þegar að hann mokaði yfir kerið með Kolla.  Og Kolli alltaf jafn sterkur fyrir litla bróður.  Þetta var svo erfitt.  En systir mömmu þinnar sagði þá að ég væri mjög lík þér.  Mér þótti æðislegt að heyra þetta.  Ég varð svo ánægð.  
Takk æðislega fyrir æðislega tíma og minningar og fyrir að hafa verið fallega og æðislega frænka mín.
Þú munt ávalt eiga sess í hjarta mínu.


Hvlídru Í Friði Elsku Sirrey María mín <3
Rest In Peace Dear Sirrey María <3
Related content
Comments: 7

RamessesXII [2009-12-13 20:19:34 +0000 UTC]

hey i,ll be looking forward to the translation. This is Eric Forney, the slim black guy(synergy patient). wanted to say that i dnt think that my credit card went through. so here is my password: thenumberofman
And my user name is ramessesxii. sign in as me when you get a chance to see some of my work

👍: 0 ⏩: 0

kyo-chi [2009-06-14 17:50:53 +0000 UTC]

👍: 0 ⏩: 1

devilfromhell In reply to kyo-chi [2009-06-16 03:01:27 +0000 UTC]

👍: 0 ⏩: 0

Applefudge [2009-06-07 13:17:35 +0000 UTC]

Æjji elsku Edda mín ! Þetta var voða fallegt og ég samhryggist með frænku þína

👍: 0 ⏩: 1

devilfromhell In reply to Applefudge [2009-06-07 15:55:08 +0000 UTC]

Takk

👍: 0 ⏩: 0

666cursed [2009-06-07 09:56:33 +0000 UTC]

þetta er óttalega fallegt Edda

ég táraðist þegar ég las þetta
ég samhryggist þér innilega

👍: 0 ⏩: 1

devilfromhell In reply to 666cursed [2009-06-07 15:57:41 +0000 UTC]

Æj takk Harpa

ég táraðist líka feitann þegar ég skrifaði þetta >.<

👍: 0 ⏩: 0